Just a Closer Walk with Thee

The Emotional Carpenters

Harpa Kaldalón

kl. 21:00 4. mars

Um tónleikana

Á tónleikunum verður flutt tónlist við myndina "Just a Closer Walk with Thee" eftir Matthew Barney og Stephan Stephensen og er óður til Ólafs Stephensen jazzgeggjara og auglýsingamanns sem féll frá 2016.

Myndin lýsir á óhlutbundinn hátt einhverskonar jarðaför en á sama tíma lífshlaupi, nýrri byrjun og frelsi. Á tónleikunum flytja The Emotional Carpenters tónlistina lifandi við myndina í fyrsta skipti. Lagið er amerískt þjóðlag og vinsæll jarðarfararsálmur í New Orleans.

The Emotional Carpenters - Sonny Greco er sjötta ævintýrið af tuttugu og fjórum í seríunni "Les Aventures de President Bongo" sem er einstaklega metnaðarfullt langtímaverkefni þar sem Stephan hefur vélað til samtarfs við sig hina ýmsu listamenn úr öllum áttum.

Efnisskrá:

  • Just a Closer Walk with Thee ‘37

Um Stephan:

Stephan Stephensen (1971) er ólíkindatól sem fundið hefur hatt sinn undir tréi tilfinninganna á verkstæði tilfinningasmiðsins. Á sínum skrautlega ferli hefur Stephan, eða President Bongo eins og hann kýs að kalla sig, byggt, beygt og skorið út list sína á þann hátt að hún hefur snert hjörtu og hug óteljandi sála.
Að loknu sveinsprófi hóf Stephan sína meistaraiðn með fjöllistahópnum Gusgus sem hóf göngu sína 1995. Þar voru verkefnin mörg og fjölbreytileg; hönnun, ljósmyndun, kvikmyndun, tónlist og framleiðsla. Innan hópsins var okkar manni ekkert óviðkomandi. Árið 2015 ákvað Stephan hins vegar að segja skilið við Gusgus með það eitt að leiðarljósi; að einbeita sér að sinni eigin list.

Flytjendur:

Davíð Þór Jónsson - Hammond (Hljómsveitarstjóri)

Bjarni Frímann Bjarnason - Píanó

Ómar Guðjónsson - Túba

Áki Ásgeirsson - Trompet og tölva

Eiríkur Orri Ólafsson - Trompet

Samúel Jón Samúelsson - Básúna

Leifur Jónsson - Básúna

Ólafur Björn Ólafsson - Trommur