The Moonbow Project
Gunnar Andreas Kristinsson

Norðurljós

Kl. 20:00 8. mars

The Moonbow Project

Hljómplatan Moonbow, með verkum eftir Gunnar Andreas Kristinsson, kom út hjá bandarísku útgáfunni Sono Luminus í apríl s.l. Þetta er önnur plata Gunnars en sú fyrsta sem kemur út hjá stóru, erlendu útgáfufyrirtæki. Platan hefur hlotið lof gagnrýnenda víða um heim og var m.a. nýverið á stuttlista fyrir Grammy-verðlaunin. Það hefur lengi staðið til að fagna útgáfunni en heimsfaraldur kóróruveiru hefur sett strik í reikninginn. Á Myrkum músíkdögum verður langþráður draumur loks að veruleika í Norðurljósasal í Hörpu þann 8. mars.
Á tónleikunum flytur Caput-hópurinn verkið Patterns IIb og Duo Harpverk flytur PASsaCAgLia B ásamt Ingólfi Vilhjálmssyni bassaklarinettuleikara. Önnur verk af plötunni verða flutt í hringóma hljóðkerfi, titilverkið Moonbow sem Strokkvartettinn Siggi lék inn á plötuna og kammersveitarverkin Roots og Sisyfos sem hljóðrituð voru í flutningi Caput (síðastnefnda verkið ásamt Ingólfi Vilhjálmssyni, einleikara á klarinett). Sono Luminus útgáfan sérhæfir sig í upptökum í svokölluðu 9.1 „fully immersive audio“ kerfi, en
þá er hljóðfærunum raðað í kringum hljóðnemana sem gerir hlustandanum kleift að staðsetja sig í miðjum hljóðfærahópnum.
Frekari upplýsingar um Moonbow má finna hér: https://www.sonoluminus.com/store/moonbow
Tónleikarnir eru styrktir af Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.