Innsetning Bergrúnar Snæbjörnsdóttur byggir á verkinu „Ecognosis”, sem samið var fyrir International Contemporary Ensemble og frumflutt vorið 2021 á vegum Myrkra músíkdaga. Frumflutningurinn fór fram samtímis og í beinu streymi frá Roulette, New York, annars vegar og Norðurljósasal Hörpu hins vegar. Nú verður hægt að upplifa þennan flutning í innsetningarformi, ásamt 10 samómandi gongum, helgina 4. til 6. mars í Hörpu, í Hörpuhorninu.
“Frumefnislegur stíll” (-Steve Smith, New Yorker) Bergrúnar Snæbjörnsdóttur hefur verið fluttur í formi kammer- og hljóðverka víðsvegar um heim af hópum eins og Oslo Philharmonic, Iceland Symphony Orchestra, International Contemporary Ensemble, Decibel, Avanti!, Distractfold, Duo Harpverk, Esbjerg Ensemble, Norrbotten NEO, Elja, Pärlor För Svin, Marco Fusi, William Winant, Tøyen Fil og Klafferi, Brák, National Sawdust Ensemble, Nordic Affect og fleirum. Þá hafa verk hennar verið valin til flutnings á virtum tónlistarhátíðum eins og Mostly Mozart Festival í Lincoln Center (US), Tectonics (UK, IS, GR, NO), Nordic Music Days (UK, NO, IS), Only Connect (NO), Classical:NEXT (NDL), SPOR (DK), Cycle (IS), Ultima (NO), Norður og Niður (IS), KLANG (DK), ISCM’s World New Music Days (CN), Sound of Stockholm, Prototype (US) auk annarra viðburða.