Hringla
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Harpa Norðurljós
12:00
27. janúar
Bára Gísladóttir hefur vakið verulega athygli undanfarin ár fyrir frumlegar tónsmíðar sínar og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars hlaut hún nýverið þriggja ára tónsmíðastyrk danska ríkisins. Hugmyndin að verkinu VAPE spratt út frá árás sem fimm menn gerðu með taugagasinu sarin í neðanjarðarlestarkerfi Tókýó-borgar árið 1995, og er hljómsveitinni skipt í fimm hópa. Frá því að verkið var frumflutt árið 2016 hefur það farið víða, var meðal annars flutt á opnunarhátíð hinnar víðfrægu tónlistarhátíðar í Darmstadt í Þýskalandi.
Hringla er verk fyrir hljómsveit, rafmagnaðan kontrabassa og rafhljóð sem Bára frumflutti sjálf ásamt Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar í febrúar 2022, sem nýr vinningshafi Gladsaxe-tónlistarverðlaunanna. Tónlistin skírskotar til margræðninnar í titli verksins, sem bæði getur merkt skrölt og glamur eða óstöðuglyndi og óákveðni. Upphafsverk tónleikanna er seiðandi kammerverk Báru „the worlds within our petty voids“ frá 2019 fyrir flautu, óbó, fiðlu, víólu og selló.
EFNISSKRÁ
Bára Gísladóttir the worlds within our petty voids
Bára Gísladóttir VAPE
Bára Gísladóttir Hringla
Einleikari
Bára Gísladóttir
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Fleiri flytjendur kynntir síðar