BUY TICKETS
Dark Music Days
Cart 0

Kammersveitin á Myrkum

Kammersveit Reykjavíkur

Harpa Norðurljós

21:00

28. JAN

Kammersveit Reykjavíkur slær lokahljóminn á Myrkum músíkdögum að vanda. Á efnisskrá eru frumflutningur á nýjum bassklarinett-konsert eftir Huga Guðmundsson, þar sem Rúnar Óskarsson leikur einleik; frumflutningur á nýju verki: Balaena, eftir Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og einnig verður leikið verk eftir Daníel Bjarnason: All sounds to silence come. Kammersveitin er sérlega stolt af því að bjóða hingað til lands norska hljómsveitarstjórann Christian Eggen, listrænan stjórnanda Oslo Sinfonietta.

Efnisskrá 

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir: Balaena — frumflutningur, 15-18’
Daníel Bjarnason: All sounds to silence come (2007), 15’
Hugi Guðmundsson: AUX, konsert fyrir bassaklarinett og kammersveit — frumflutningur, 18’

Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð 1974 og hefur síðan haldið reglulega tónleika með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans. Markmiðið með stofnun hennar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Óhætt er að fullyrða Kammersveitinni hafi tekist ætlunarverk sitt því hún hefur átt fastan sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar síðan. Félagar í Kammersveitinni eru virkir þátttakendur í tónlistarlífi Íslendinga, margir þeirra meðlimir í Sinfóníuhljómsveit Íslands og ýmsum öðrum hljómsveitum auk þess að stunda tónlistarkennslu. Rut Ingólfsdóttir hefur lengst af verið leiðari sveitarinnar og listrænn stjórnandi. Nú hefur Una Sveinbjarnardóttir tekið við sem konsertmeistari Kammersveitar Reykjavíkur. Kammersveit Reykjavíkur kemur fram í misstórum hópum, allt frá 3 til 40 manns, en stærð hópsins ræðst af þörfum tónverkanna hverju sinni. Kammersveitin er kunn fyrir fjölbreytt verkefnaval og góðan flutning. Hún hefur frumflutt fjölda íslenskra og erlendra verka sem samin hafa verið fyrir hana og ennfremur staðið fyrir íslenskum frumflutningi þekktra erlendra verka. Á undanförnum árum hefur Kammersveit Reykjavíkur lagt áherslu á upptöku og útgáfu íslenskra verka m.a. þeirra fjölmörgu tónverka sem íslensk tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir hana. Þessir geisladiskar endurspegla þá listrænu samvinnu, sem Kammersveitin hefur átt við helstu listamenn landsins í gegnum tíðina. Ennfremur hefur Kammersveitin gefið út geisladiska með klassískum verkum m.a. Brandenborgarkonserta Bachs, en fyrir þá útgáfu hlaut Kammersveitin Íslensku tónlistarverðlaunin 2003. Kammersveit Reykjavíkur hefur tvívegis verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs; árið 2005 og aftur árið 2015. Nýlega kom út geislaplata á vegum Sono Luminus: Windbells, þar sem Kammersveitin leikur verk eftir Huga Guðmundsson.

Hugi Guðmundsson (1977) nam tónsmíðar og raftónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík, Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og Sonology stofnunina í Den Haag.

Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlaun fyrir list sína og má þar nefna íslensku tónlistarverðlaunin fjórum sinnum, Kraumsverðlaunin, þrjár heiðurstilnefningar á alþjóðlega tónskáldaþinginu og fyrstu verðlaun í tónsmíðakeppni Norrænna músíkdaga í Finnlandi 2013.

Hugi hlaut Bjartsýnisverðlaunin árið 2014 og það ár hlaut hann einnig hæsta styrk sem veittur er af danska ríkinu til tónskálda en hann er í formi þriggja ára starfslauna. Aðeins eitt tónskáld úr hverjum tónlistargeira hlýtur þennan styrk ár hvert.

Stærsta verk hans til þessa er óperan Hamlet in absentia en fyrir hana hlaut hann íslensku tónlistarverðlaunin 2016 en það var annað árið í röð sem hann vann þau verðlaun. Óperan var jafnframt tilnefnd til hinna virtu Reumert sviðslistaverðlauna sem óperuuppfærsla ársins í Danmörku og vann verðlaunin í tveimur öðrum flokkum, m.a. fyrir handrit ársins. Óperan var tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, 2018 og var það önnur tilnefning Huga til þeirra verðlauna.

Hugi býr og starfar í Danmörku.

Heimasíða Huga

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir hóf tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands haustið 2013. Helstu leiðbeinendur hennar voru Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Anna Þorvaldsdóttir. Hún útskrifaðist þaðan vorið 2016 og hóf þá um haustið hálfs árs starfsnám hjá Önnu Þorvaldsdóttur á Englandi. 

Ingibjörg hefur unnið með leikurum, sviðshöfundum, leik-, dans og kammerhópum og kvikmyndagerðarmönnum. Frá útskrift hefur hún tvívegis hlotið styrk frá Tónskáldasjóði RÚV og vinnur nú að hljóðritun á verki sínu Hulduhljóð að handan ásamt Lilju Maríu Ásmundsdóttur. Var það verkefni styrkt af Hljóðritasjóð RANNÍS.

Daníel Bjarnason er eitt fremsta tónskáld Íslands og hefur hann unnið með og fengið verk sín flutt af fjölda hljómsveita og má þar nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fílharmóníusveitirnar í Los Angeles og New York, Sinfóníuhljómsveitirnar í Toronto, Winnipeg, Melbourne og Adelaide, Sinfóníuhljómsveit BBC í Skotlandi, Residentie-hljómsveitina, Ulster-hljómsveitina, Britten-sinfóníuna og Sinfóníettuna í Kraká. Hann hefur gefið út fjórar plötur hjá plötufyrirtækinu Bedroom Community, Processions (2010), Solaris (2012), Over Light Earth (2013) og Collider (2018). 

Meðal helstu verka Daníels eru óperan Brothers sem sýnd var á Íslandi á Listahátíð í Reykjavík, við mikla hrifningu og fiðlukonsert, sem var pantaður af Fílharmóníusveit Los Angeles og Sinfóníuhljómsveit Íslands, og frumfluttur af Pekka Kuusisto og fyrrnefndu sveitinni undir stjórn Gustavos Dudamel í Hollywood Bowl. Daníel hefur gegnt stöðum staðarlistamanns og aðalgestastjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gegnir nú stöðunni „listamaður í samstarfi“.

Reykjavík Chamber Orchestra

Harpa, Norðurljós

21:00

JAN 28

Reykjavík Chamber Orchestra

The program includes the premiere of a new bass clarinet concerto by Hugi Guðmundsson, where Rúnar Óskarsson plays the solo part; the premiere of a new piece, Balaena, by Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir; and a piece by Daníel Bjarnason: “All sounds to silence come”. The Chamber Orchestra is particularly proud to be working with the Norwegian conductor Christian Eggen, artistic director of the Oslo Sinfonietta. 

Programme:

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir: Balaena — first performance
Daniel Bjarnason: All sounds to silence come (2007)
Hugi Guðmundsson: AUX, concerto for bass clarinet and chamber ensemble — premiere

Performers:

The Reykjavík Chamber Orchestra
Conductor: Christian Eggen
Soloist, Bass Clarinet: Rúnar Óskarsson  

When Christian Eggen began his conducting career in 1981, as leader of the Ny Musikk Ensemble, he had already established a highly successful career as a pianist in Norway and abroad. In 1984 he represented Norway at the Biennale for Nordic Soloists, and his recording of Carl Nielsens piano works was received to great critical acclaim. Christian Eggen made his international breakthrough as a conductor during the World Music Days in 1990 and he rapidly became one of the Nordic countries most prominent conductors, especially favoured for his performances of contemporary music. In 1993 he became artistic director of Oslo Sinfonietta, and since 1988 he has been conductor of the Cikada ensemble. Christian Eggen was the focus of international attention in 1999 following his performance of Kurtágs Steele with the Swedish Radio Symphony Orchestra; he collaborates with leading contemporary music ensembles like musikFabrik (Cologne) and Ensemble InterContemporain (Paris), Robe de bal violetteas well as leading symphony orchestras. In 2008 he will make his debut with the Orchestra Filarmonica della Scala at the Teatro alla Scala. His long list of recordings includes such orchestras as the Royal Philharmonic in London. Eggen has worked closely with a great number of composers, among them Cage, Xenakis, Dillon, Lachenmann, Lutoslawski, Kurtág, Barrett, Tan Dun, Saariaho and Lindberg. His own output includes music for film and theatre, chamber music, orchestral works, and electroacoustic compositions and installations. He was principle featured performer at the Bergen International Festival in 1999, he was awarded the Norwegian Music Critics Prize. Eggen has also received the Spellemann prize, the Lindeman prize and the Oslo Bys Kunstnerpris in recognition of his contribution to music in the city of Oslo. In 2005 he and the Cikada group received the Nordic Council Music Prize. In 2007 His Majesty King Harald 5 appointed him Commander of The Royal Norwegian Order of St. Olav.

Rúnar Óskarsson completed solo and teaching diplomas from the Reykjavík College of Music in 1993, where his principal teacher was Sigurður I. Snorrason. He continued his studies at the Sweelinck Conservatory in Amsterdam with George Pieterson and in 1996 graduated with a diploma in clarinet performance. In addition he studied with Harry Sparnaay and completed the same degree on bass clarinet in 1998, having also studied with Walter Boeykens in Rotterdam. Since 2004 he has held a position with the Iceland Symphony Orchestra. Is also a regular member of the Icelandic Opera Orchestra, Caput ensemble and the orchestra of the National Theater in addition to be the soloclarinettist of the Reykjavík Chamber Orchestra. He has recorded many CD ́s with all these ensembles and gone abroad on tours, both as a member of the orchestra as well as a soloist, playing both bass clarinet and the clarinet.