BUY TICKETS
Dark Music Days
Cart 0

MÖRSUGUR (ljóðsaga fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki)

Heiða Árnadóttir, Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir

Harpa Norðurljós

19:00

25. janúar

Mörsugur er ópera fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggð á ljóðsögu eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Ljóðsagan er brotakennd frásögn með útúrdúrum sem gerist í þjóðsagnakenndri íslenskri náttúru. Erkitýpurnar sem persónan er byggð á eru goðsagnakenndar kvenfyrirmyndir. Í verkinu er reynt að ná utan um þokukennt hugarástand konu sem er á milli heima, á milli ljóss og myrkurs og þar sem minningar og raunskynjun renna í eitt. Verkið er unnið í samsköpunarferli Ásbjargar Jónsdóttur, Heiðu Árnadóttur og Ragnheiðar Erlu Björnsdóttur. Myndbandsverk er eftir Ásdísi Birnu Gylfadóttur.

Efnisskrá

MÖRSUGUR (ljóðsaga fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki) Tónskáld: Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir/ Ljóðsaga:  Ragnheiður Erla Björnsdóttir / 2022 "50 - frumfluttingur 

Teymið

Rödd: Heiða Árnadóttir
Tónskáld: Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir Dramatúrgur : Kolbrún Anna Björnsdóttir
Myndbandsverk: Ásdís Birna Gylfadóttir
Sviðsmynd og búningur: Heiða Eiríksdóttir

Flytjendur og tónskáld

Ragnheiður (Heiða) Árnadóttir, söngkona, hefur lagt ríka áherslu á flutning nútímatónlistar, sem og þjóðlaga-, djass-, tilrauna, og ljóðatónlistar. Hún hefur frumflutt fjölmörg verk íslenskra tónskálda, þar á meðal eftir Gunnar Karel Másson, Ásbjörgu Jónsdóttur, Þórunni Björnsdóttur Þórönnu Björnsdóttur, Guðmund Stein Gunnarsson og Þórunni Grétu Sigurðardóttur. 

Ásamt fjölda tónleika á Íslandi, þar sem hún hefur meðal annars frumflutt verk með Ensemble Adapter og Caput, hefur Heiða einnig komið fram í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Indlandi, Svíþjóð og Danmörku. Hún hefur flutt verk á Norrænum músíkdögum, Iceland Airwaves, Sumartónleikum í Skálholti, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, Jazzhátíð Reykjavíkur og ýmsum hátíðum erlendis líkt og á hátíðartónleikum á heimstónlistarhátíðinni WOMEX í Kaupmannahöfn.

Heiða er lagahöfundur, textaskáld og söngkona í hljómsveitinni Mógil sem hafa gefið út fjórar plötur. Platan þeirra Ró, sem gefin var út af Radical Duke í Belgíu og var nýjasta plata þeirra, Aðventa, gefin út af hinu virta útgáfufyrirtæki Winter and Winter í Þýskalandi.

Heimasíða Heiðu

Hljóðbrot

Ragnheiður Erla Björnsdóttir er tónskáld, ljóðskáld og raddlistakona búsett í Vínarborg þar sem hún stundar doktorsnám í listrænum rannsóknum. Hún lauk meistaraprófi í ritlist frá Háskóla Íslands vorið 2018 og bakkalárprófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Ragnheiður er meðlimur í listhópnum Hlökk, hljóð- og myndbandskollektívinu SÚL_VAD og austurríska listarýminu Die Labile Botschaft. 

Hún stundar þverfaglegar rannsóknir á röddinni frá sjónarhorni líkamningu (e. embodiment) og vistfræðilegrar tónlistar. Verk Ragnheiðar hafa verið flutt alþjóðlega í margvíslegum birtingamyndum, allt frá hljóðinnsetningum í skógi til leikrænna raddverka. Hún notast gjarnan við aðferðarfræði afbyggingar (e. deconstruction) í leit að nýjum merkingum, sögum og tengingu við ókunnug svæði. 

Heimasíða Ragnheiðar

Ásbjörg Jónsdóttir er tónskáld, píanóleikari og söngkona. Hún lauk BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2014 og MA gráðu frá sama skóla árið 2018. Ásbjörg stjórnar barnakór og kennir hljómfræði og píanóleik. Tónlist Ásbjargar hefur m.a. verið flutt af Caput, Hljómeyki, Duo Harpverk, Elektra Ensemble, Dómkórnum í Reykjavík og IMPRU. Þá hafa verk hennar verið flutt á Myrkum músíkdögum þrisvar sinnum; af Duo Harpverk árið 2012, af Foot in the Door 2015 og af Heiðu Árnadóttur 2019. Hún hefur breiðan tónlistarlegan bakgrunn, allt frá djasssöng til kórastarfs en hefur þroskað tónsmíðagáfu sína jafnt og þétt í eftirminnilegum kammerverkum sem sameina léttleika og ljóðrænu. 

Ásbjörg hefur einnig tekið að sér önnur verkefni í tónlist svo sem upptökur, útsetningar og rannsóknir. Ásbjörg vinnur um þessar mundir að rannsókn um jazz á Íslandi í samstarfi við Þorbjörgu Daphne Hall og Oxford University Press. Þá kom út bók með 12 nýjum barnalögum eftir Ásbjörgu í apríl 2019.

Heimasíða Ásbjargar

Ás Dís (Ásdís Birna Gylfadóttir) er myndlistarkona, en hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá AKI ArtEZ í Enschede, Hollandi sumarið 2022. Verk eftir hana hafa verið sýnd á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku, Hollandi og Austurríki. Helsta tjáningarform hennar eru myndbönd, í bland við gjörninga, tilraunakennda hljóðhönnun og innsetningar. Í verkum sínum rannsakar hún hugsanaferli sitt og hversdagsleikann, yfirþyrmandi hugsanir og stjórnleysi umhverfisins og leitast hún eftir því að lýsa því sjónrænt sem erfitt er að tjá með orðum. Ásamt tónskáldinu Ragnheiði Erlu stofnaði hún listakollektívið SÚL_VAD, einnig er hún meðlimur í RASK, hópi ungra íslenskra listamanna sem vinna þverfaglefa á sviði lista og nýsköpunar.

Heimasíða Ásdísar

MÖRSUGUR (poetic tale fyrir voice and audiovisuals)

Heiða Árnadóttir, Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir

Harpa Norðurljós

7 PM

January 25th

Mörsugur is an opera for voice and audiovisuals created from a poetic tale by Ragnheiður Erla Björnsdóttir. Located in folkloric Icelandic nature, the fragmented storytelling ventures on frequent detours on behalf of mythic-like heroines on which the narrator is built upon. Made in a creative collaboration between Ásbjörg Jónsdóttir, Heiða Árnadóttir and Ragnheiður Erla Björnsdóttir, the piece depicts the nuances of being in between worlds, of light and darkness, and memories and the present. Visuals by Ásdís Birna Gylfadóttir.

Programme:

MÖRSUGUR (poetic tale fyrir voice and audiovisuals)
Composers Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir/ Poetic tale:  Ragnheiður Erla Björnsdóttir / 2022 "50 - premiere 

The team:

Voice: Heiða Árnadóttir
Composers: Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir Dramaturge : Kolbrún Anna Björnsdóttir
Video art: Ásdís Birna Gylfadóttir
Stage and costumes: Heiða Eiríksdóttir

About the performers

The Icelandic singer Heiða Árnadóttir has in her career emphasized on the performance of modern music, folk, jazz, experimental as well as lied music. She has premiered many pieces of Icelandic composers such as Gunnar Karel Másson, Ásbjörg Jónsdóttir, Þórunn Gréta Sigurðardóttir, Þóranna Björnsdóttir, Guðmundur Steinn Gunnarsson. and Þórunn Björnsdóttir.

 In addition to numerous concerts in Iceland, where she has premiered various compositions with Ensemble Adapter and Caput, Heiða has also performed in Holland, Belgium, France, India, Sweden and Denmark. She has also performed during Nordic Music Days, Iceland Airwaves, Skálholt Summer Festival, Siglufjörður Folk Festival, Reykjavík Jazz Festival and various foreign festivals. 

Heiða has composed songs and lyrics and is the singer in the band Mógil, which has issued four Cds. Their CD „Ró“ was nominated for the Icelandic Music Awards in 2008 but their newest CD „Adventa“ , based on Gunnar Gunnarsson´s famous novel of the same name, was issued by the German publishing company Winter and Winter in 2019. .

Heiða: 

youtube: https://www.youtube.com/channel/UC1UAlVwInz8p_ulQGZi5WwQ

heimasíða: https://heidaarnadottir.wixsite.com/heidaarna

Ragnheiður Erla Björnsdóttir is a composer, poet and vocal artist. She is currently a doctoral candidate at the Artistic Research Center at the University of Music and Performing Arts in Vienna. Ragnheiður holds a MA in Creative Writing from the University of Iceland and a BA in Composition from the Icelandic Academy of the Arts. She is a member of the art group Hlökk, the audiovisual collective SÚL_VAD, and the Viennese artist space Die Labile Botschaft. 

Her practice centres interdisciplinary research on voice through embodiment and sustainability. Working with de- and reconstructing techniques, she explores and forges webs of connectivity with storytelling in unsung places. Ragnheiður's pieces have been presented internationally in various forms, ranging from hidden sound installations in a forest to theatrical vocal performances.

Ragnheiður's Website

Ásbjörg Jónsdóttir (1988- ) is a composer, pianist and jazz vocalist. She received her BA in composition from the Iceland Academy of the Arts in 2014 and her MA in composition from the same institution in 2018. Ásbjörg is engaged with various musical activities. In addition to her composition career, she conducts a children's choir, teaches music theory and piano. Her music has been performed by Caput, Hljómeyki, Duo Harpverk, Elektra Ensemble, Reykjavík Cathedral Choir and IMPRA. Her music has been performed at the Dark Music Days Festival in Iceland; by Duo Harpverk in 2012 and by Foot in the Door ensemble from The Hartt School (University of Hartford) in 2015. Ásbjörg has also worked on other musical projects such as recordings, arrangements and musical research. In the summer of 2013 and 2018 she undertook a research project on; the music of Þorkell Sigurbjörnsson and jazz in Iceland, funded by the Icelandic Student Innovation Fund. The research project about jazz in Iceland is in collaboration with Þorbjörg Daphne Hall and Oxford University Press. Ásbjörg released a book with 12 of her new songs for children’s choir in April 2019.

Ásbjörg's Website

Ás Dís (Ásdís Birna Gylfadóttir) is an Icelandic artist, who graduated with a Bachelor of Fine Arts from AKI ArtEZ in Enschede, The Netherlands in 2022. Her focus is mainly on video in combination with experimental sound design, performance and installations. Together with composer Ragnheiður Erla, she founded SÚL_VAD art collective, an audio/visual collaboration between the two. She is also a member of RASK, a collective of young Icelandic artists that work at the intersection of art and technology.

Ásdís Birna’s Website