Hljóðin sem við heyrum í bíó ýta undir sjónhverfingar, smjúga inn í merg og bein og flytja okkur um óravíddir í tíma og rúmi, enda hefur hljóð þann eiginleika að skarast í skilningarvitum líkamans. Í kvikmyndahúsum fá töfrar frásagnarlistar, hljóð- og myndmiðlunar að blómstra og gestir upplifa þá öru tækniþróun sem á sér stað í heimi kvikmyndanna.
Í kvikmyndahúsum er hið sjónræna yfirleitt í aðalhlutverki en á viðburðinum HljóðMyndum er boðið upp á óvenjulega upplifun í bíó þar sem hljóðlistin er alltumlykjandi. Valinn hópur innlends og erlends listafólks skapar hljóðverk sem vilja umvefja og dýpka reynsluheim gesta; færa þá nær líkamleika hlustunar. Með hjálp tækni sem er göldrum líkust eru gestir leiddir um ómælis víðáttur hljóðheima þar sem þeirra bíður ýmislegt óvænt, áhrifaríkt og hljómmikið.
Listrænn stjórnandi & verkefnisstjóri/Artistic Director & Project Manager
Þóranna Dögg Björnsdóttir
Listrænn stjórnandi/Artistic Director
Curver Thoroddsen