Back to All Events

Lokatónleikar Myrkra músikdaga

  • Harpa, Norðurljós 2 Austurbakki Reykjavík, 101 Iceland (map)

English below

Um tónleikana

Lokatónleikar Myrkra músikdaga hafa verið fastur liður hjá Kammersveit Reykavíkur. Í ár er boðið uppá fjölbreytta dagskrá með frumflutningi á innlendum og erlendum verkum.

Efnisskrá tónleikanna

  • Norðurljós, verk fyrir einleikshorn og kammersveit eftir Áskel Másson (1953) (Frumflutningur)

    • Einleikari: Stefán Jón Bernharðsson

  • Drifting light, fyrir kammersveit og visuals eftir Jörgen Hall (1986), Svíþjóð (Frumflutningur)

  • Nýtt verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur (1965) (Frumflutningur)

  • Vanascere (2021) eftir Veronique Vaka (1986) (Frumflutningur)

    • Einleikari: Þórunn Ósk Marínósdóttir

Flytjendur

Kammersveit Reykjavíkur / Reykjavík chamber orchestra
Stjórnandi: Mirian Khukhunaishvili
Einleikarar: Stefán Jón Bernharðsson, horn, Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóla

Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 af Rut Ingólfsdóttur ásamt 12 hljóðfæraleikurum, sem flestir voru nýkomnir heim frá námi erlendis og störfuðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun hennar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans, og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Óhætt er að fullyrða Kammersveitin hafi tekist ætlunarverk sitt því hún hefur átt fastan sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar síðan. Kammersveit Reykjavíkur kemur fram í misstórum hópum, allt frá 3 til 35 manns, en stærð hópsins ræðst af þörfum tónverkanna hverju sinni. Meðlimir Kammersveitarinnar eru virkir þátttakendur í tónlistarlífi Íslendinga enda meðlimir í Sinfóníuhljómsveit Íslands og ýmsum öðrum hljómsveitum auk þess að stunda tónlistarkennslu. Enn hafa þeir að leiðarljósi það takmark að auðga íslenskt tónlistarlíf með því að leyfa áheyrendum að hlýða á fyrsta flokks flutning tónbókmennta frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar. Markmið stofnenda Kammersveitarinnar eru því jafn mikið í gildi í dag og þau voru fyrir þremur áratugum. Kammersveitin er kunn fyrir fjölbreytt verkefnaval og góðan flutning. Hún hefur frumflutt fjölda íslenskra og erlendra verka sem samin hafa verið fyrir hana og ennfremur staðið fyrir íslenskum frumflutningi þekkra erlendra verka, þ.á.m. Pierrot Lunaire, Serenöðu, Kammersinfóníu nr. 1 og fleiri verka eftir Arnold Schönberg, Kvartetts um endalok tímans og Des Canyons aux Étoiles eftir Olivier Messiaen, Façade eftir William Walton, Fratres, Te Deum og fleiri verk Arvo Pärts. Kammersveitin hefur fengið ýmsa þekkta stjórnendur til liðs við sig. Einkum hefur hún unnið náið með Paul Zukofsky, Reinhard Goebel, Jaap Schröder og Vladimir Ashkenazy píanóleikara og stjórnanda. Starfsemi Kammersveitar Reykjavíkur rúmar jafnt tónleikahald innanlands sem utan og einnig upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Hún kemur reglulega fram á Listahátíð í Reykjavík og hefur leikið á fjölmörgum tónlistarhátíðum erlendis. Kammersveit Reykjavíkur hefur komið fram fyrir Íslands hönd við fjölmörg tækifæri erlendis, t.d. á heimssýningunum í Lissabon 1998 og í Hannover árið 2000, sem og við opnun sendiráðs Íslands í Tokyo. Í maí 2003 fór Kammersveitin í tónleikaferð til Belgíu og Rússlands í boði Vladimirs Ashkenazys, þar sem hann kom fram bæði sem einleikari og stjórnandi. Í október 2004 flutti Kammersveitin efnisskrá með íslenskum verkum á Íslenskum menningardögum í París, Islande de glace et de feu. Á undanförnum árum hefur Kammersveit Reykjavíkur lagt áherslu á upptöku og útgáfu þeirra fjölmörgu tónverka sem íslensk tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir hana. Ætlunin er að geisladiskarnir endurspegli þá listrænu samvinnu sem Kammersveitin hefur átt við helstu listamenn landsins í gegnum tíðina.

Stefán Jón Bernharðsson er leiðari horndeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1998, þar sem Jósef Ognibene var kennari hans, stundaði síðan nám hjá Fröydísi Ree Wekre við Tónlistarháskólann í Osló, og lauk prófi þaðan 2005. Frá árinu 2000 hefur Stefán Jón svo verið fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann kemur oft fram sem einleikari með hljómsveitum og á hátíðum á Norðurlöndum og hefur tekið upp einleikskonserta með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur. Stefán Jón er einn fremsti hornleikari sinnar kynslóðar og fær því regluga boð um að leika sem gesta-leiðari í öðrum hljómsveitum eins og t.d. Mahler Kammersveitinni, Fílharmóníuhljómsveitunum í Stokkhólmi og Osló, Sinfóníuhljómsveitunum í Melbourne og Gautaborg, Þýsku Sinfóníuhljómsveitinni í Berlín og Fílharmóníusveit franska útvarpsins í París. Hann hefur einnig unnið fyrstu verðlaun í ConocoPhillips tónlistarkeppninni í Osló, önnur verðlaun í alþjóðlegu hornkeppninni Lieksa í Finnlandi og þriðju verðlaun í alþjóðlegu hornkeppninni Cittá di Porcia á Ítalíu.

Þórunn Ósk Marinósdóttir er leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún er fædd og uppalin á Akureyri þar sem hún stundaði fiðlunám, lengst af hjá Lilju Hjaltadóttur. Hún lauk Mastersprófi í víóluleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Brussel undir handleiðslu Ervin Schiffer. Í Belgíu var hún leiðari víóludeildar kammerhljómsveitarinnar Prima la Musica undir stjórn Dirks Vermeulen og um tíma meðlimur í I Fiamminghi undir stjórn Rudolfs Werthens. Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Prima la Musica, Kammersveit Reykjavíkur, Caput og Sumida Triphony Hall orchestra í Tokýó. Þórunn kennir víóluleik og kammermúsík við Menntaskóla í tónlist og Listaháskóla Íslands auk þess sem hún kennir reglulega á sumarnámskeiðum á við Alþjóðlegu Tónlistarakademíuna í Hörpu (HIMA). Þórunn spilar mikið af kammermúsík og er reglulegur gestur Kammermúsíkklúbbsins og tónlistarhátíða í Reykjavík og víðar. Árið 2012 stofnaði hún Strokkvartettinn Sigga ásamt félögum sínum í kvartettinum en hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018. Hljóðrit kvartettsins hafa einnig verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og fengið lof gagnrýnenda hér heima og erlendis. Frá árinu 2021 hefur Þórunn tekið við listrænni stjórn Reykholsthátíðar ásamt eiginmanni sínum Sigurði Bjarka Gunnarssyni en hátíðin er haldin á hverju sumri í Reykholti í Borgarfirði. Plötuútgáfan Smekkleysa hefur gefið út hljóðritanir þar sem Þórunn fer með einleikshlutverkið í víólukonsertinum “Ombra” ásamt Kammersveit Reykjavíkur og “Dagbókarbrot” fyrir víólu og píanó hvoru tveggja eftir Hafliða Hallgrímsson. Hún hefur einnig spilað inn á fjölda kammermúsík hljóðritana, oftast undir merkjum Kammersveitar Reykjavíkur.

Tónskáldin

Veronique Jacques, listamannanafn Veronique Vaka, fædd 1986, er tónskáld staðsett á suður Íslandi. Hún lærði klassískan sellóleik og electro-acoustic tónsmíðar í Montreal háskólanum og útskrifaðist með meistaragráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands. Árið 2017 var hún ein af tveimur tónskáldum sem valin voru til þátttöku í verkefninu Yrkja þar sem hún skrifaði verkið „Rift“ fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Annað hljómsveitarverkið hennar „Lendh“, skrifað 2018, var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónverk ársins 2019 en einnig tilnefnt til Tónlistarverðlauna Norðurlandarráðs fyrir hönd Íslands 2020.

Veronique Vaka hefur skrifað verk fyrir sinfóníuhljómsveitir, kammersveitir, einleiksfiðlu og kammersveit skrifað fyrir Unu Sveinbjarnadóttur, strengjakvartett, söngverk við texta Steinunnar A. Stefánsdóttur og einleiksfiðlu skrifað fyrir Höllu Steinunni Stefánsdóttur. Verk hennar hafa verið flutt á Tónlistarhátíð Rásar 1 (2020), Myrkum Músíkdögum (2018, 2019, 2020), Sumartónleikum í Skálholti (2018) en einnig í Evrópu og Norður Ameríku. Meðal þeirra verkefna sem framundan eru má nefna verkið Gemæltan fyrir einleiks Selló og sinfóníuhljómsveit sem skrifað er fyrir Sæunni Þorsteinsdóttir en frumfluttningur verður 2021/22 og verk fyrir einleiks víólu og Kammersveit Reykjavíkur skrifað fyrir Þórunni Ósk Marinósdóttur.

Veronique hefur fært sig nær óhlutbundinni nálgun að tónsmíðum þegar hún hóf að rannsaka „Yfirfærslu landslags til nótnaskriftar“. Markmið verka hennar er að skapa ljóðrænt samband þess sem hún sér, heyrir og skynjar í ósnortinni náttúru sem hún sameinar og vinnur úr í tónsmíðaferlinu. Verkin hennar einkennast af lífrænu flæði tónlistarinnar þar sem áhersla er lögð á smáatriði hvað varðar hryn, áferð og hljómblæ.

Áskell Másson hefur um langt árabil verið meðal þekktustu tónskálda þjóðarinnar. Eftir hann liggja á þriðja hundrað tónverk, þar á meðal yfir 30 hljómsveitarverk og 20 einleikskonsertar. Verk hans hafa verið flutt af mörgum stærstu og þekktustu hljómsveitum, hljómsveitarstjórum og einleikurum samtímans. Þau eru og skylduverkefni í mörgum tónlistarháskólum og oftsinnis notuð í alþjóðlegum hljóðfærakeppnum. Verk hans hafa komið út í hljóðritunum á yfir 30 hljómdiskum og eru gefin út á nótum hjá Editions BIM í Sviss og hjá Íslenskri tónverkamiðstöð.

 Tónskáldið Jörgen Hall (1986) er frá Norður-Svíþjóð. Hann sækir innblástur í hið eðlislæga lífræna handahóf náttúrunnar við mótun hljómandi landslags, þar sem hann lætur „náttúruna“ ganga sinn takt. Hann hefur einnig áhuga á sýn tímans sem sálrænnar víddar, sem við getum ekki skynjað að fullu, þar sem segja má að við séum inni í henni. Þetta, ásamt áhuga á austurlenskri heimspeki, hefur orðið til þess að hann tileinkaði sér kínverska orðtakið „Ekki ýta ánni, hún rennur af sjálfu sér“, sem listrænt kjörorð.

 Verkaskrá hans inniheldur kammertónlist, hljómsveitartónlist sem og raf- og hljóðmyndaverk. Tónlist hans hefur verið flutt bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.

Elín Gunnlaugsdóttir (1965) nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan 1993. Árið 1998 lauk hún framhaldsnámi í tónsmíðum frá Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag. Þar voru kennarar hennar í tónsmíðum þeir Theo Loevendie og Diderik H. Wagenaar. Hún hefur frá því hún útskrifaðist unnið við tónsmíðar og kennslu.

Verkaskrá Elínar samanstendur af kammerverkum og söngverkum, en hún hefur meðal annars skrifað fyrir Caput-hópinn, Camerarctica og Schola Cantorum auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Elín hefur á seinustu árum unnið náið með flautleikaranum Pamelu De  Sensi og hefur skrifað fyrir hana fjögur flautuverk sem hún hefur flutt bæði hér heima og erlendis. Þá hefur hún samið fjögur tónleikhúsverk fyrir börn á undanförnum tíu árum. Verkin eru barnaballettinn Englajól (2010/2012), söngleikurinn Björt í sumarhúsi (2015) og tónleikhúsið Nú get ég (2018) við texta eftir Þórarinn Eldjárn. Tónlistarævintýrið Drekinn innra með mér (2018) fyrir sögumann og sinfóníuhljómsveit við texta eftir Lailu Arnþórdóttur.

 Um verkið segir Elín: Þegar hljóðfæraleikarinn leikur þá eru tón- og hljóðmyndunin í skugga handa hans. Þannig er samspil hljóðfærleikarans og tónsmiðsins eins konar skuggaleikur. Í verkinu er leikið með þessa hugmynd. Tónhugmyndir ganga á mismunandi hraða og mynda þannig eins konar endurkast af hver annarri.

Franska tónskáldið, organistinn og spunaspilarinn Thierry Escaich (1965) er eitt af mikilvægustu frönsku tónskáldum sinnar kynslóðar. Þessir þrír þættir í listsköpun hans eru óaðskiljanlegir og gera honum kleift af koma fram við ýmis tilefni, sem flytjanda, tónskáldi og í ýmiskonar samvinnuverkefnum. 

Eschaich semur í mörgum stíltegundum og formum og telur verkalisti hans yfir 100 verk sem hafa hrifið áheyrendur um allan heim með ljóðrænum línum, ríkri hljómsetningu og ritmískri orku. 

Eschaich lærði við Konservatoríið í París, bæði tónsmíðar og orgelleik og gegnir hann núna starfi organista við Saint-Étienn-du-Mont kirkjuna í París. Hann sækir innblástur sinn víða, m.a. til Brahms, Bartók, Ravel og Messiaen, en einnig má heyra áhrif frá kirkjulegri tónlist. 

Mecanic song, verk fyrir blásarakvintett og píanó, var samið árið 2006. 


About the Event

The Programme

  • Norðurljós, piece for solo horn and Chamber Orchestra by Áskell Másson (1953) (World premiére).

    • Soloist: Stefán Jón Bernharðsson

  • Drifting light for Chamber Orchestra and visuals by Jörgen Hall (1986), Sweden (World premiére)

  • Nýtt verk by Elín Gunnlaugsdóttir (1965) (World premiére)

  • Vanascere (2021) by Veronique Vaka (1986) (World premiére)

    • Soloist: Þórunn Ósk Marínósdóttir

About the performers


Þórunn Ósk Marinósdóttir is the principal violist of the Iceland Symphony Orchestra and a founding member of Siggi String Quartet which has been awarded the The Icelandic Music Award. Born and raised in Akureyri but later she studied the viola at the Royal Conservatory of Music in Brussels with mr. Ervin Schiffer. In Belgium she was the principal viola of the chamber orchestra Prima la Musica and for a period a member of the soloist ensemble I Fiamminghi. Alongside her job at the Symphony Þórunn has always played a lot of chamber music, has been a part of many chamber music recordings, mostly in the name of Reykjavík Chamber Orchestra and is a regular guest at chamber music festivals in Iceland such as Reykholt music festival and Reykjavik Midsummer Music. Her recordings of music by Hafliði Hallgrímsson; “Ombra” viola concerto with the Reykjavik Chamber Orchestra and “Notes from a Diary” for viola and piano have been published by the “Bad taste” record company. Þórunn has performed as a soloist with the Iceland Symphony Orchestra, Reykjavík Chamber Orchestra, Prima la Musica and Sumida Triphony hall Orchestra in Tokyo. Since 2021 Þórunn is the artistic director of Reykholt Music Festival along with her husband. Þórunn also teaches viola and chamber music at the Reykjavík College of Music and Icelandic University of the Arts.

About the composers

Veronique Vaka, born in 1986, is a composer based in the southern region of Iceland. She studied classical cello performance at Vincent-d’Indy, and continued her studies in electro-acoustic composition at the University of Montreal and completed a Master's degree in music composition from the Iceland University of the Arts. Her orchestral work Lendh has been nominated for The Icelandic Music Awards 2020 - Composition of the year, and for the Nordic Council Music Prize 2020. Veronique took a step towards a more abstract approach to her music when she started her research: From Landscape to Music Notation. The intention of her work is to create a poetic context between what she sees, hears and feels in the unspoiled nature, and combine it into a musical composition. Her composition style can be described as organic, with an emphasis on small details such as rhythmic, textural, and timbral elements. Veronique Vaka has composed various works for chamber orchestra, works for symphony orchestra, vocal works with the poetry of Steinunn A. Stefánsdóttir, a violin concerto for Una Sveinbjarnardóttir, premiered with Caput Ensemble in 2020, to name a few. Her works have been performed during Tónlistarhátíð Rásar 1 (2020), Myrkir Músíkdagar/ Dark Music Days (2018, 2019, 2020) and Sumartónleikar í Skálholti (2018). Among upcoming projects is the premiere of Gemæltan, for solo cello and orchestra, written for Sæunn Thorsteinsdóttir and the writing of a viola concerto for Þórunn Ósk Marinósdóttir and Kammersveit Reykjavíkur. Dr. Mirian Khukhunaishvili is a co-founder, Artistic Director and Chief Conductor of the Tbilisi Youth Orchestra. He is a Founder and Artistic Director of the Alter Orchestra. Mirian earned his doctoral and master's degrees in orchestral conducting at the Academy of Music in Krakow (under the supervision of prof. Stanislaw Krawczyński). He also got a master’s degree from the Tbilisi State Conservatoire in choral conducting (in the class of prof. Liana Chonishvili). Mirian’s collaborations have included conducting with the Danish National Symphony Orchestra, Macedonian Philharmonic Orchestra, Podkarpacka Philharmonic Orchestra, Beethoven Academy Orchestra, Tbilisi Opera and Ballet State Theatre’s Orchestra, Georgian National Philharmonic Orchestra, Tbilisi State Orchestra, Tbilisi State Chamber Orchestra – Georgian Sinfonietta, and others.

Jörgen Hall is a Swedish composer from northern Sweden. He takes inspiration from Nature's inherent organic randomness in shaping his sonic landscapes, where he lets "nature" take its course. He is also interested in the view of time as a psychological dimension, which we cannot perceive in full, since we can be said to exist inside it. This, in combination with an interest for eastern philosophy has led him to adopt the Chinese proverb, "Don’t push the river, it flows by itself", as his artistic motto. His output includes chamber, orchestral music as well as electroacoustic and audiovisual works. His music have been performed in both the US, Europe and Asia.



Earlier Event: January 29
Harmóník