Aldarmót
Strokkvartettinn Siggi
Harpa Norðurljós
17:00
27. JAN
Strokkvartettinn Siggi flytur þrjá kvartetta eftir náin samstarfstónskáld. Strokkvartettinn frumflutti "Flowen" eftir Veronique Vöku í Kammermúsíkklúbbnum árið 2020 og frumflutti "Horfna skóga" eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur í Salnum árið 2021. Strokkvartettinn Siggi hefur undanfarin misseri tekið upp alla strengjakvartetta Atla Heimis Sveinssonar og koma þeir út seinna á þessu ári. "Aldarmót" er þeirra umfangsmestur og hefur ekki hljómað í tónleikasölum frá því á níunda áratug síðustu aldar.
Meðlimir Strokkvartettsins Sigga
Una Sveinbjarnardóttir (fiðla), Helga Þóra Björgvinsdóttir (fiðla), Þórunn Ósk Marinósdóttir (víóla), Sigurður Bjarki Gunnarsson (selló)
Efnisskrá
Veronique Vaka: "Flowen" (2020) ‘12 mínútur
María Huld Markan Sigfúsdóttir: "Horfnir skógar" (2021) ‘14 mínútur Atli Heimir Sveinsson: "Aldarmót" (1984) ‘25 mínútur
Um hópinn
Strokkvartettinn Siggi var stofnaður árið 2012 í tengslum við UNM hátíðina,Ung Nordisk Musik. Kvartettinn hefur einbeitt sér að flutningi á nýrri tónlist auk hefðbundinna efnisskráa og unnið að nýsköpun tónlistar í nánu samstarfi við samtímatónskáld og listamenn. Verkefni Strokkvartettsins Sigga hafa meðal annars verið fimm klukkustunda langur kvartett Morton Feldman, kvartettar Jóns Leifs, verk Atla Heimis Sveinssonar auk fjölmargra kvartetta Beethovens. Fyrsta plata Strokkvartettsins Sigga “South of the Circle” kom út hjá Sono Luminus útgáfunni 2019 og hlaut lofsamlega dóma. Platan inniheldur kvartetta eftir Daníel Bjarnason, Mamiko Dís Ragnarsdóttur, Valgeir Sigurðsson, Unu Sveinbjarnardóttur og Hauk Tómasson. Fleiri upptökur sem má nefna eru plötur tónskáldanna Halldórs Smárasonar og Gunnars Andreasar Kristinssonar fyrir Sono Luminus og upptökur fyrir Deutsche Grammophon á verkum Philip Glass með Víkingi Ólafssyni. Strokkvartettinn Siggi hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins árið 2018.