Back to All Events

Ferð án fyrirheits / Journey without destination

  • Harpa, Eldborg 2 Austurbakki Reykjavík, 101 Iceland (map)

English below

Um tónleikana

Fimm ný og spennandi íslensk hljómsveitarverk hljóma á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar á Myrkum músíkdögum.

Efnisskrá

  • Capriccio eftir Áskel Másson 

  • It Relaxes Me, the Repetition eftir Hauk Tómasson (frumflutningur)

  •  Pons papilloma eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur (frumflutningur)  

  • Ferð án fyrirheits eftir Kjartan Ólafsson (frumflutningur)

  • Glerhjallar eftir Svein Lúðvík Björnsson (frumflutningur)

Flytjendur

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Ville Matvejeff

Einleikarar: Áskell Másson, Bryndís Halla Gylfadóttir, Grímur Helgason og Sigrún Eðvaldsdóttir

Um tónskáldin

Áskell Másson hefur um áratuga skeið verið meðal fremstu tónskálda þegar kemur að því að semja fyrir slagverkshljóðfæri. Capriccio er samið fyrir darabuka, sem er bikartromma ættuð frá Tyrklandi og Austurlöndum nær, en Áskell hefur á löngum ferli þróað ákveðna leiktækni á trommuna og bregður sér hér í hlutverk einleikarans. Þess má geta að í verkinu hljómar einnig annað óvenjulegt hljóðfæri, alúfónn, en Sinfóníuhljómsveit Íslands áskotnaðist nýverið slíkt hljóðfæri að gjöf.

Haukur Tómasson er löngu landskunnur fyrir tónsmíðar sínar og verk hans er meðal annars að finna á hljómdiskinum Concurrence sem tilnefndur var til Grammy- verðlauna nýverið. Nýtt hljómsveitarverk hans, It Relaxes Me, the Repetition, sækir innblástur í verk japönsku listakonunnar Yayoi Kusama, sem nýtur mikillar hylli fyrir litrík og þráhyggjukennd verk sín.

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir var valin bjartasta vonin í hópi sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2020 og tónleikhúsverk hennar, Fuglabjargið, fékk frábærar viðtökur í Borgarleikhúsinu nýverið. Nýtt verk hennar, Pons papilloma, er samið að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og segir hún að það sé „úrvinnsla og kortlagning af áfalli“.

Nýtt hljómsveitarverk frá Sveini Lúðvík Björnssyni sætir tíðindum, en íhugul tónlist hans hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Þegar Sinfóníuhljómsveitin flutti klarínettkonsert hans árið 2014 sagði gagnrýnandi Fréttablaðsins að útkoman hafi verið seiðandi og unaðsleg, og að verkið væri „einn allra besti íslenski einleikskonsert sem ég hef hlýtt á“.

Nýtt hljómsveitarverk Kjartans Ólafssonar er tileinkað minningu finnska tónskáldsins Einojuhani Rautavaara. Um tónsprotann heldur finnski hljómsveitarstjórinn og tónskáldið Ville Matvejeff, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Jyväskylä.


About the concert

Five exciting new Icelandic orchestral works will be showcased at the Iceland Symphony’s Dark Music Days concert.

The programme

  • Capriccio by Áskell Másson

  • It Relaxes Me, the Repetition by Haukur Tómasson (World premiére)

  •  Pons papilloma by Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir (World premiére)

  • Ferð án fyrirheits by Kjartan Ólafsson (World premiére)

  • Glerhjallar by Sveinn Lúðvík Björnsson (World premiére)

The performers

Icelandic Symphony Orchestra

Conductor: Ville Matvejeff

Soloists: Áskell Másson, Bryndís Halla Gylfadóttir, Grímur Helgason and Sigrún Eðvaldsdóttir

The composers

Áskell Másson has long been among the foremost composers of percussion music. His Capriccio is written for darabuka, a goblet drum originating in Turkey and the Near East. Over a long career, Áskell has gained considerable command of the instrument and joins the Iceland Symphony as soloist for this performance. The score includes another unusual instrument, the aluphone, which the Iceland Symphony recently received as a gift. 

Haukur Tómasson has long been well known for his compositions, one of which can be heard on the Iceland Symphony’s Grammy-nominated CD Concurrence. His new orchestral work, It Relaxes Me, the Repetition, was inspired by Japanese artist Yayoi Kusama, who has enjoyed widespread acclaim for her colourful, obsession-laden works.

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir received the Brightest Hope award for classical and contemporary music at the 2020 Icelandic Music Awards, and her recent theatre piece, Fuglabjargið, was exceedingly well received at its recent performance in the Reykjavík City Theatre. About her new work, Pons papilloma, written at the request of the Iceland Symphony the composer says it represents “mapping and working through trauma.”

A new orchestral piece by Sveinn Lúðvík Björnsson is always good news. His contemplative style has brought him deserved attention, and when the Iceland Symphony performed his Clarinet Concerto in 2014, the critic from Fréttablaðið called it a mesmerising experience, ranking the concerto “among the very best Icelandic concerti I have ever heard.”

Kjartan Ólafsson’s new orchestral piece is dedicated to the memory of Finnish composer Einojuhani Rautavaara. The Iceland Symphony’s Dark Music Days concert is conducted by composer-conductor Ville Matvejeff, Chief Conductor of the Jyväskylä Sinfonia.



Later Event: January 28
Bára og Gunnar Andreas