English below
Um viðburðinn
Ókeypis hádegistónleikar á Myrkum músíkdögum í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Efnisskrá tónleikana
Flekar eftir Gunnar Andreas Kristinsson
Vape eftir Báru Gísladóttur
Flytjendur
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Ville Matvejeff
Um tónskáldin
Bára Gísladóttir hefur vakið verulega athygli undanfarin ár fyrir frumlegar tónsmíðar sínar og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars hlaut hún nýverið þriggja ára tónsmíðastyrk danska ríkisins. Hugmyndin að verkinu VAPE spratt út frá árás sem fimm menn gerðu með taugagasinu sarin í neðanjarðarlestarkerfi Tókýó-borgar árið 1995, og er hljómsveitinni skipt í fimm hópa. Frá því að verkið var frumflutt árið 2016 hefur það farið víða, var meðal annars flutt á opnunarhátíð hinnar víðfrægu tónlistarhátíðar í Darmstadt í Þýskalandi.
Gunnar Andreas Kristinsson hefur hlotið mikið lof fyrir plötuna Moonbow sem kom út nýverið hjá Sono Luminus-útgáfunni í Bandaríkjunum. Á þessum tónleikum hljómar verkið Flekar, sem tónskáldið segir að sé „samsett úr tónmössum sem mætast eða skarast líkt og jarðflekar, með tilheyrandi núningi og spennumyndun“. Flekar voru samdir að beiðni Gunnsteins Ólafssonar vorið 2019 fyrir Sinfóníuhljómsveit unga fólksins en verkið hljómar nú í fyrsta sinn í útgáfu fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit.
Aðgangur er ókeypis.
About the event
A noontime concert with recent Icelandic orchestral works being performed for the first time by the Iceland Symphony.
The programme
Flekar by Gunnar Andreas Kristinsson
Vape by Bára Gísladóttir
The performers
Icelandic Symphony Orchestra
Conductor: Ville Matvejeff
About the composers
Bára Gísladóttir has drawn considerable attention in recent years for her innovative compositions and has received numerous awards, including a three-year composition stipend from the Danish government. The idea for VAPE originated in the sarin gas attack five men perpetrated in the Tokyo underground train system in 1995. The orchestra is divided into five groups. Since its premiere in 2016, the work has travelled far and wide, including a performance at the opening festival of the famous Darmstadt festival in Germany.
Gunnar Andreas Kristinsson has been praised widely for his album Moonbow, recently released by Sono Luminus in the US. This concert features his work Flekar, which the composer says is “constructed from tonal masses that meet or overlap like tectonic plates, generating friction and tension.” Flekar, which dates from 2019, was written for the Icelandic Young People’s Orchestra at the request of the group’s conductor, Gunnsteinn Ólafsson. This performance is the first since the composer revised the work and expanded it for full symphony orchestra.
Free entrance