Back to All Events

En núna?

  • Harpa, Norðurljós 2 Austurbakki Reykjavík, 101 Iceland (map)

English below

Um viðburðinn
Tinna Þorsteinsdóttir og Heiða Árnadóttir flytja verk sem sérstaklega hafa verið samin fyrir þær, eftir tónskáldin Þórönnu Dögg Björnsdóttur, Þórunni Björnsdóttur, Guðmund Stein Gunnarsson og Gunnar Karel Másson. Verkin taka áheyrandann í rafmögnuðu andrými í ferðalag um frumefni, endurtekningu og örvæntingu að sáttum. Þóranna Dögg Björnsdóttir tekur þátt í flutningnum á verkinu sínu, Ilm og ómleikar.

Efnisskrá tónleikanna

  • lm- og ómleikar (2021) eftir Þórönnu Dögg Björnsdóttur, Verk fyrir rödd, hljómborðshljóðfæri, hljóð og rafhljóð. Frumfluttningur 15´

  • Spirit III (2021) eftir Þórunni Björnsdóttur Endurstilling- Reset verk fyrir rödd og harmonium. frumfluttningur 10´

  • Songs of Violence/Songs of Despair (2020/2021) eftir Gunnar Karel Másson, verk fyrir rödd, dótapíanó og undirbúið píanó. Frumfluttningur á Songs of Despair 20´

  • Mamma pikkar á tölvu sumarið 1988 (2013) eftir Guðmund Stein Gunnarsson, verk fyrir dótapíanó. 1´

  • Adibaran Ocirebal (2021) eftir Guðmund Stein Gunnarsson, sóló ópera fyrir eina rödd og rafhjóð. Frumfluttningur 15´

Um flytjendur

Tinna Þorsteinsdóttir er konsertpíanisti með víðtæka reynslu á sviði nýrrar tónlistar og hefur frumflutt fjölda verka sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hana. Hún vinnur náið með mörgum íslenskum tónskáldum, er liðtæk í tilraunatónlistarsenunni og hefur unnið að einleiksverkum með listamönnum eins og Helmut Lachenmann, Alvin Lucier, Christian Wolff, Peter Ablinger, Morton Subotnick, Cory Arcangel og Mme Yvonne Loriod-Messiaen. Tónlist 21stu aldar er hennar aðal ástríða. Undirbúið píanó, rafhljóð, dótapíanó, leikhúsverk og gjörningar rata gjarnan inn á efnisskrár hennar. Undanfarin ár hefur Tinna skapað innsetningar og ýmiskonar hljóð- og performansverk, þar sem efniviður eins og píanóhlutar, heilabylgjur hennar sjálfrar, heitt og kalt gler og raftónlist koma við sögu.

Heiða Árnadóttir er söngkona og staðarlistamaður Myrkra músíkdaga 2020-2022. Á feril sínum hefur hún lagt ríka áherslu á flutningi nútímatónlistar, sem og þjóðlaga-, djass-, tilrauna-, og ljóðatónlist. Hún hefur frumflutt fjölmörg verk hjá íslenskum tónskáldum sem og Gunnar Karel Másson, Ásbjörgu Jónsdóttur, Hafstein Þórólfsson, Birgit Djupedal, Þórönnu Björnsdóttur og Guðmund Stein Gunnarsson. Ásamt fjölda tónleika á Íslandi, þar sem hún hefur meðal annars frumflutt verk með Ensemble Adapter og Caput, hefur Heiða einnig komið fram í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Indlandi, Svíþjóð og Danmörku. Hún hefur flutt verk á Norrænum músíkdögum, Iceland Airwaves, Sumartónleikum í Skálholti, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, Jazzhátíð Reykjavíkur og ýmsum hátíðum erlendis.t Heiða er lagahöfundur, textaskáld og söngkona í hljómsveitinni Mógil sem gefið hafa út fjórar plötur. Platan þeirra Ró, sem gefin var út af Radical Duke í Belgíu, var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2008 og var nýjasta plata þeirra, Aðventa, gefin út af hinu virta útgáfufyrirtæki Winter and Winter í Þýskalandi.

Um tónskáldin

Þóranna Dögg Björnsdóttir (f.1976) stundaði tónlistarnám frá unga aldri og hefur komið víða við á vettvangi tónlistar. Þóranna lauk burtfararprófi í klassískum píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH og hóf að því loknu nám við Konunglega Listaháskólann í Haag í Hollandi. Þar stundaði hún þverfaglegt listnám og lauk þaðan BA prófi. Einnig hefur Þóranna lokið M.Art.Ed frá Listkennsludeild LHÍ, hún hefur sótt ýmis námskeið og vinnustofur í tengslum við tónlist, hljóð- og myndlist og staðið að kennslu í þeim efnum. Verk Þórönnu eru sambland af mynd og hljóði; byggja m.a. á samspili kvikmyndar og lifandi tónlistarflutnings og taka á sig mynd í formi hljóðskúlptúra, gjörninga og hljóðverka. Verk hennar hafa verið flutt víða og hefur hún komið fram á fjölmörgum tónleikum og listahátíðum á Íslandi og erlendis. Þóranna starfar einnig sem hljóð- og gjörningalistamaður með listahópnum Wunderland. http://thorannabjornsdottir.com/ https://soundcloud.com/aka-trouble

Þórunn Björnsdóttir (1971) nam tónlist og myndlist í Reykjavík og síðar í Amsterdam og Den Haag í Hollandi. Hún hefur unnið í ýmsum miðlum, bæði tónverk og innsetningar og liggja verk hennar oft á mörkum hins persónulega og opinbera rýmis. Hún er einnig blokkflautuleikari og kennari og hefur einnig gefið út ljóð. Verk hennar hafa verið sýnd og flutt á Íslandi og í Evrópu.

Gunnar Karel Másson fæddist í Reykjavík 17. Maí 1984. Tónlistarnám hóf hann ungur að árum í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Hann stundaði nám á nokkur hljóðfæri má m.a. nefna túbunám við undirbúningsdeild fyrir tónlistarháskóla í Danmörku og jazz trompet við tónlistarskóla F.Í.H.. Árið 2007 hóf Gunnar Karel nám við Listaháskóla Íslands og lauk þaðan B.A. gráðu í tónsmíðum vorið 2010. Gunnar lagði stund á framhaldsnám í tónsmíðum í Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn frá 2010 til 2014 og lauk við M.Mus. og Advanved post-graduate diploma frá þeim skóla. Kennarar Gunnars í tónsmíðum voru; Tryggvi M. Baldvinsson, Úlfar Ingi Haraldsson, Bent Sørensen, Hans Abrahamsen, Jeppe Just Christensen, Niels Rosing Schow og Juliana Hodkinson. Sem tónskáld hefur Gunnar einbeitt sér fyrst og fremst að kammertónlist, þar sem honum finnst tónlistin fá þar þá athygli og tíma sem að hún þarfnast. Einnig hefur hann samið tónlist við fjölda leiksýninga hér heima og erlendis. Fyrir utan tónsmíðarnar þá hefur Gunnar einnig haslað sér völl sem tónleikahaldari. Var hann listrænn stjórnandi Myrkra Músíkdaga 2016 – 2020 og stofnaði árið 2012 Sonic hátíðina í Kaupmannahöfn ásamt kollega sínum Filip C. de Melo. Einnig er hann einn af listrænum stjórnendum tónleikaraðarinnar Jaðarber í Reykjavík sem hefur legið í dvala í nokkur ár. Gunnar starfar einnig hjá Listahátíð í Reykjavík sem verkefnisstjóri norræna samstarfs verkefnisins Platform GÁTT. Gunnar er meðlimur í Dansk Komponistforening, Sviðslistahópnum 16 elskendur og S.L.Á.T.U.R.

Undanfarin ár hefur tónlist Guðmundar Steins Gunnarssonar þróað hrynmál sem má segja að líkist hrynjandi í umhverfinu. Tónlistin er oftar en ekki lesin af tölvuskjám þar sem nóturnar hreyfast og nær þannig fram ákveðnum hrynblæ. Meðal hljómsveita og tónlistarhópa sem hann hefur unnið með má nefna BBC Scottish Symphony, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput hópinn, Ensemble Adapter, Defun Ensemble, l'Arsenale, Kammersveit Reykjavíkur, Íslenska Flautukórinn, Quartet San Francisco, Duo Harpverk, Timo Kinnunen, Mathias Ziegler og Roberto Durante. Tónlist Guðmundar hefur heyrst á hátíðum eins og Tectonics Reykjavík og Glasgow, Transit, November Music, Musikin Aika, Ultima, MATA, Nordlichter Biennale, Thingamajigs Festival og Reno Interdisciplinary Arts Festival. Guðmundur nam tómsíðar við Mills College í Oakland í Kaliforníu með Alvin Curran, Fred Frith og John Bischoff. Einnig í Listaháskóla Íslands með Úlfari Haraldssyni og Hilmari Þórðarsyni. Hann hefur þá sótt tíma hjá Atla Ingólfssyni. Hann hefur verið iðinn við kolann í íslensku tónlistalífi komið að stofnun S.L.Á.T.U.R., Sláturtíðar, Jaðarbers, Fengjastrúts, útgáfunnar Traktorsins og hefur leitt tónlistarhópinn Ferstein. Árið 2011 vann Guðmundur til verðlauna í tónsmíðakeppni í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins. Tónverk hans hafa komið út hjá Smekkleysu, Edgetone, Carrier, Tonestrukt og Vauxes Flores. gudmundursteinn.net: bandcamp.com/gudmundursteinn soundcloud.com/gudmundursteinn youtube.com/gudmundursteinn https://en.wikipedia.org/wiki/Gu%C3%B0mundur_Steinn_Gunnarsson


About the event

The composers Þóranna Dögg Björnsdóttir, Þórunn Björnsdóttir, Guðmundur Steinn Gunnarsson and Gunnar Karel Másson have written music especially for Tinna Þorsteinsdóttir and Heiða Árnadóttir. These compositions travel through electric atmosphere, emotions of serenity, imitation, desperation towards the central stage. Þóranna Björnsdóttir will participate in the performance of her piece "Ilm og ómleikar."

The programme

  • Scent - & sound games by Þóranna Björnsdóttir

  • Spirit III - Reset by Þórunn Björsdóttir Work fyrir voice and harmonium.

  • Songs of Violence/Songs of Despair by Gunnar Karel Másson, for voice, toy pian and prepared piano.

  • Mamma pikkar á tölvu sumarið 1988 by Guðmundur Steinn Gunnarsson, is a little poem about youth for toy piano. 

  • Adibaran Ocirebal by Guðmundur Steinn Gunnarsson, solo opera for voice and Electronics. 

Performers 

Tinna Thorsteinsdóttir is a concert pianist with a broad experience in new music and has premiered numerous works especially written for her. She works on a regular basis with Icelandic composers, is active in the Icelandic experimental music scene and has worked on solo works with artists such as Helmut Lachenmann, Alvin Lucier, Christian Wolff, Peter Ablinger, Morton Subotnick, Cory Arcangel and Mme Yvonne-Loriod Messiaen.

21st century music is her main passion. Prepared piano, electronics, toy piano, theatre pieces and performance works often show up on her programs. In recent years Tinna has mainly been active as a performance artist, making installations, soundscapes and performance works with materials like piano parts, her own brainwaves, hot and cold glass and electronic music.

The singer Heiða Árnadóttir is the local artist of the Dark Music Days festival 2020-2022. In her career she has emphasized the performance of modern music,  folk, jazz, experimental as well as lied music. She has premiered many pieces of Icelandic composers such as Gunnar Karel Másson, Ásbjörg Jónsdóttir, Hafsteinn Þórólfsson, Þórunn Björsdóttir, Þóranna Björnsdóttir and Guðmundur Steinn Gunnarsson.

In addition to numerous concerts in Iceland, where she has premiered various compositions with Ensemble Adapter and Caput, Heiða has also performed in Holland, Belgium, France, India, Sweden and Denmark.l. She has also performed during Nordic Music Days, Iceland Airwaves, Skálholt Summer Festival, Siglufjörður Folk Festival, Reykjavík Jazz Festival and various foreign festivals. 

Heiða has composed songs and lyrics and is the singer in the band Mogil, which has issued four Cds. Their CD „Ró“ was nominated for the Icelandic Music Awards in 2008 but their newest CD „Adventa“ , based on Gunnar Gunnarsson´s famous novel of the same name, was issued by the  German publishing company Winter and Winter in 2019.

The composers

Gunnar Karel Másson 

Gunnar Karel was born in Reykjavik, Iceland in 1984. He started studying music at an early age and has played a diverse range of instruments. As a composer Gunnar mainly focuses on chamber music as he finds that his music gets the attention it deserves in smaller setups. Besides his composing he has been making his mark as concert producer. He founded the Sonic festival in Copenhagen with Filip C. de Melo in 2012. He is also one of the curators for the Peripheriberry group and was the artistic director of Dark Music Days in Reykjavik from 2016 – 2020. He recently started working for the Reykjavik Arts Festival as the project manager of a Nordic collaborative project, Platform GÁTT.

Gunnar is a member of Danish Composers Society, the theater group 16 elskendur and the Icelandic composers collective S.L.Á.T.U.R.. He studied composition in Iceland and Denmark with Tryggvi Baldvinsson, Dr. Úlfar Ingi Haraldsson, Bent Sørensen, Hans Abrahamsen, Juliana Hodkinson, Jeppe Just Christensen and Niels Rosing Schow. 

Þóranna Dögg Björnsdóttir is a sound and visual artist based in Reykjavík Iceland. She studied music from an early age and graduated as a classical pianist. Then she immediately turned to the field of contemporary interdisciplinary art. A graduate of the Royal Academy of art in The Hague, Thoranna has worked as a video and performance artist in the electroacoustic field; working with different medium, she realizes her work through film, performances and installations. Thoranna also works as a sound- and performance artist with Wunderland; creating experiences, performances and workshops.

Guðmundur Steinn Gunnarsson's musical thinking is based on a rhythmical system that transcends the boundaries of pulse and traditional notation. This is often represented in his works through having musical symbols move on a computer screen, that is, animated notation.

His music has been performed by the BBC Scottish Symphony Orchestra, the Iceland Symphony Orchestra, Ensemble Adapter, Reykjavík Chamber Orchestra, Ensemble l'Arsenale, Tøyen Fil og Klafferi, Defun Ensemble, Aksiom Ensemble and Nordic Affect as well as soloists such as Timo Kinnunen, Matthias Ziegler, Roberto Durante and Georgia Browne.

 Some of the festivals that have included Guðmundur's music are Tectonics in Reykjavík and Glasgow, Transit Festival, November Music, Time of Music (Musikin Aika), Music for People and Thingamajigs, MATA, Nordlichter Biennale, Timisoara International Music Festival and ISSTC 2014 in Maynooth Ireland, where Guðmundur was a Keynote speaker.

Guðmundur Steinn studied musical composition at Mills College in Oakland, California and Iceland Academy of the Arts and at summer courses in Kürten and Darmstädt.

 Guðmundur has been active in the composer collective S.L.Á.T.U.R. in Iceland and taken part in its festival Sláturtíð and the Jaðarber concert series as well as Fengjastrútur Ensemble. He runs his own small ensemble called Fersteinn.

Þórunn Björnsdóttir (1971) studied music and visual arts in Reykjavík and the Netherlands.  She has composed music for dance, electronic performances and various instrument settings. She is also a serious recorder player and teacher and has published poetry. Þórunn´s compositions often have a strong performative aspect. In recent years, performances and installations have been her main focus where her work has a strong sense of the actions and notions of everyday life. Þórunn´s works constantly test the boundaries between the personal and the public. Her works have been performed both in Iceland and various other European countries.


Earlier Event: January 28
Bára og Gunnar Andreas
Later Event: January 28
Birting / Surfacing