Back to All Events

Hlustunarklefi Sinfóníuhljómsveitar Íslands / Iceland Symphony’s Listening Chamber


  • Harpa Austurbakki 2 101 Reykjavík Iceland (map)

(English below)

Hlustunarklefi Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Hlustaðu á upptökur hljómsveitarinnar í hringóma hljóðkerfi í Hörpu

30. jan. – 1. feb. » 10:00 - 22:00      

Stemma | Harpa     

Aðgangur ókeypis

Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á opið hlustunarrými á Myrkum músíkdögum í Stemmu í Hörpu þar sem hægt er að hlusta á upptökur hljómsveitarinnar af íslenskum hljómsveitarverkum. Upptökurnar komu nýlega út á diskunum Concurrence og Recurrence hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus. Plöturnar eru teknar upp í hringómi (e. surround sound) og í upptökunum var ný uppstilling á hljómsveitinni sérstaklega valin fyrir hvert einasta verk sem best hentaði hljóðheimi hvers verks. Upplifunin verður því sérlega áhrifarík þar sem tónlistin er tekin upp í einskonar þrívídd svo að hlustandinn heyrir tónlistina allt um kring. Hljómsveitarstjóri í upptökunum var Daníel Bjarnason, upptökustjóri var Grammy-verðlaunahafinn Daniel Shores og hljóðmeistari var Dan Merceruio.

Plöturnar hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda. Concurrence, sem kom út í nóvember síðastliðnum, var m.a. valin á árslista hjá The New York Times, NPR og Second Inversion sem ein af bestu útgáfum ársins 2019. Á plötunni má heyra Metacosmos eftir Önnu Þorvaldsdóttur, píanókonsert nr. 2 eftir Hauk Tómasson með píanóleikaranum Víkingi Heiðari Ólafssyni, Oceans eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttir og Quake eftir Pál Ragnar Pálsson með sellóleikaranum Sæunni Þorsteinsdóttur.

Fyrsti diskurinn í röðinni, Recurrence, var valinn plata ársins í sigildri tónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2019 en diskurinn inniheldur Flow and Fusion eftir Þuríði Jónsdóttur, db eftir Hlyn Aðils Vilmarsson, Aequora eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Emergence eftir Daníel Bjarnason og Dreaming eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Þriðji diskurinn í röðinni kemur út síðla árs 2020 en á honum verða verk eftir Daníel Bjarnason, Þuríði Jónsdóttur, Veronique Vöku og Magnús Blöndal Jóhannsson.

Diskarnir eru gefnir út í tvöfaldri útgáfu, annar diskurinn inniheldur hefðbundnar upptökur af verkunum sem hægt er að spila í öllum geisladiskaspilurum og hinsvegar er Blu-ray diskur með hringóma útgáfunni. Diskar hljómsveitarinnar fást í plötuverslunum landsins og verða einnig fáanlegir í Epal í Hörpu á meðan tónleikahátíðin Myrkir músíkdagar stendur yfir.

Hlustunarklefinn er í fundaherberginu Stemmu á fyrstu hæð Hörpu. Klefinn er opinn frá 10:00 til 22:00 frá fimmtudeginum 30. janúar til laugardagsins 1. febrúar. Nýttu tækifærið og hlustaðu á það nýjasta í íslenskri hljómsveitartónlist í hringóma hljóðkerfi þar sem upptökurnar njóta sín til fulls.

TÓNVERK

Anna Þorvaldsdóttir: Metacosmos og Dreaming
Daníel Bjarnason: Emergence
Haukur Tómasson: Píanókonsert nr. 2
Hlynur Aðils Vilmarsson: db
María Huld Markan Sigfúsdóttir: Oceans og Aequora
Páll Ragnar Pálsson: Quake
Þuríður Jónsdóttir: Flow & Fusion

______

Iceland Symphony’s Listening Chamber

Listen to the orchestra’s latest recordings in immersive surround sound

30 Jan – 1 Feb » 10:00 - 22:00         

Stemma | Harpa     

Admission is free

The Iceland Symphony Orchestra invites guests to listen to their latest albums in surround sound at Harpa Concert Hall. The listening chamber will be open to the public from 10 AM to 10 PM from Thursday 30 January to Saturday 1 February.

The Iceland Symphony's latest releases, Concurrence and Recurrence, were released by the US label Sono Luminus. Both are recorded in surround sound, with a new orchestra setup devised especially for each piece, based on its particular sound. This results in a unique three-dimensional experience. The performances were conducted by Daníel Bjarnason, with the recording team of the Grammy-award winning recording engineer Daniel Shores, and producer Dan Merceruio.

Both albums have received high praise from critics. Concurrence, released last November, made several end-of-year lists for one of the best releases of 2019, including The New York Times, NPR, and Second Inversion. The album contains Metacosmos by Anna Thorvaldsdóttir, Piano Concerto no. 2 by Haukur Tómasson (Víkingur Ólafsson, piano), Oceans by María Huld Markan Sigfúsdóttir, and Quake by Páll Ragnar Pálsson (Sæunn Thorsteinsdóttir, cello).

The first disc in the series, Recurrence, was selected Best Album (classical) at the Icelandic Music Awards in 2019. That album contains Flow and Fusion by Þuríður Jónsdóttir, db by Hlynur Aðils Vilmarsson, Aequora by María Huld Markan Sigfúsdóttir, Emergence by Daníel Bjarnason, and Dreaming by Anna Thorvaldsdóttir. The third and last album in this series will be released in late 2020 and will contain works by Daníel Bjarnason, Þuríður Jónsdóttir, Veronique Vaka, and Magnús Blöndal Jóhannsson.

The listening chamber is located in the room Stemma on the first floor of Harpa. It is open from 10 AM to 10 PM from Thursday 30 January to Saturday 1 February. This is a unique opportunity to hear the latest in Icelandic orchestral music in a state-of-the-art surround audio system.