(ENGLISH BELOW)
Á lokatónleikum Myrkra músíkdaga frumflytur Kammersveit Reykjavíkur þrjú ný íslensk verk eftir þau Hauk Tómasson, Kolbein Bjarnason og Unu Sveinbjarnardóttur. Að auki flytur sveitin tvö erlend verk sem ekki hafa heyrst áður á Íslandi, Serenöðu hins rússneska Alfred Schnittke og Magic With Everyday Objects Missy Mazzoli frá Bandaríkjunum. Einleikarar í verki Hauks er Dúó Harpverk, þau Katie Buckley á hörpu og Frank Aarnink á simbalon. Einsöngvari í verki Kolbeins er Hildigunnur Einarsdóttir messósópran.
Efnisskrá
Alfred Schnittke: Serenaða fyrir klarinett, fiðlu, kontrabassa, slagverk og píanó (1968) - frumflutningur á Íslandi
Missy Mazzoli: Magic With Everyday Objects fyrir flautu, klarinett, rafgítar, kontrabassa og píanó (2007) - frumflutningur á Íslandi
Una Sveinbjarnardóttir: Myrkur og regn fyrir óbó og kammerhóp (2020) - frumflutningur
Haukur Tómasson: Nature Morte fyrir hörpu, simbalon og kammersveit (2019) - frumflutningurEinleikarar: Dúó Harpverk: Katie Buckley, harpa, Frank Aarnink, simbalon
Kolbeinn Bjarnason: Ekkert kemur í hans stað (Þrjár aðferðir við að lesa ljóðið Allt deyr eftir Steinunni Sigurðardóttur) (2020) fyrir messósópran og kammersveit - frumflutningur
Einsöngvari: Hildigunnur Einarsdóttir
Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 undir stjórn Rutar Ingólfsdóttur. Upprunalega voru í sveitinni tólf tónlistarmenn sem flestir voru nýkomnir heim úr framhaldsnámi í tónlist erlendis til að starfa við Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun sveitarinnar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist frá ýmsum tímum, allt frá barokkinu til nútímans, og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við ólík og krefjandi verk. Kammersveit Reykjavíkur er kunn fyrir fjölbreytt verkefnaval og mikilfenglega tónleika, þar á meðal ákaflega vinsæla jólabarokktónleika. Sveitin hefur flutt mörg af mikilvægustu verkum íslenskra tónskálda nútímans og mörg þeirra hafa verið samin sérstaklega fyrir sveitina. Kammersveit Reykjavíkur hefur verið iðin við útgáfu frá því hún var stofnuð. Kammersveitin hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2004 fyrir hljóðritun sína á Brandenborgarkonsertum Johanns Sebastians Bachs undir stjórn Jaap Schröders. Sveitin hefur tvisvar sinnum verið tilefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.
Flytjendur:
Áshildur Haraldsdóttir, flauta
Rúnar Óskarsson, klarinett
Baldvin Tryggvason, klarinett
Kristín Þóra Pétursdóttir, klarinett
Matthías Birgir Nardeau, óbó
Carlos Aguilera, básúna
Páll Palomares, fiðla
Vera Panitch, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Hrafnkell Orri Egilsson, selló
Richard Korn, kontrabassi
Guðmundur Pétursson, rafgítar
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Soraya Nayyar, slagverk
Einleikarar:
Hildigunnur Einarsdóttir, messósópran
Dúó Harpverk:
Katie Buckley, harpa
Frank Aarnink, simbalon
Stjórnandi í verki Unu: Una Sveinbjarnardóttir
Stjórnandi í verkum Hauks og Kolbeins: Rúnar Óskarsson
______
In the Final concert of Dark Music Days Reykjavík Chamber Orchestra premieres three pieces written by the Icelandic composers Haukur Tómasson, Kolbeinn Bjarnason and Una Sveinbjarnardóttir. The orchestra also plays two pieces by international composers, Serenade by the Russian composer Alfred Schnittke, and Magic With Everyday Objects by Missy Mazzoli from the United States, neither of which have been heard before in Iceland. Soloists in Haukur’s piece are Duo Harpverk; Katie Buckley, harp, and Frank Aarnink, cimbalon. Soloist in Kolbein’s piece is Hildigunnur Einarsdóttir, mezzo soprano.
Program
Alfred Schnittke: Serenade for clarinet, violin, double bass, percussion and piano (1968) - Iceland premiere
Missy Mazzoli: Magic With Everyday Objects for flute, clarinet, electric guitar, double bass and piano (2007) - Iceland premiere
Una Sveinbjarnardóttir: Darkness and Rain for oboe and chamber ensemble (2020) - premiere
Haukur Tómasson: Nature Morte for harp, cimbalon and chamber ensemble (2019) - premiereSoloists: Duo Harpverk: Katie Buckley, harp, Frank Aarnink, cimbalon
Kolbeinn Bjarnason: Ekkert kemur í hans stað (Þrjár aðferðir við að lesa ljóðið Allt deyr eftir Steinunni Sigurðardóttur) (2020) for mezzo soprano and chamber ensemble - premiere
Soloist: Hildigunnur Einarsdóttir
Founded in 1974 under Rut Ingólfsdóttir, the Reykjavík Chamber Orchestra initially comprised a dozen young musicians who had returned to Iceland after advanced music studies abroad to perform with the Iceland Symphony Orchestra and teach at the Reykjavík College of Music. The ensemble was founded with the dual objectives of giving regular public performances of chamber music from the Baroque era to the 20th century, and providing musicians with varied and challenging opportunities to perform live. The orchestra is renowned for the range of its repertoire and the excellence of its live performances, including the highly popular Christmas Baroque concerts. It has commissioned and premièred many of the most significant works by contemporary Icelandic composers, many of which were composed especially for the ensemble. The Reykjavík Chamber Orchestra has released numerous CDs. Its recording of Bach’s Brandenburg Concertos received the Icelandic Music Awards in 2004. The orchestra has twice been nominated for the Nordic Council Music Prize.
Performers:
Áshildur Haraldsdóttir, flute
Rúnar Óskarsson, clarinet
Baldvin Tryggvason, clarinet
Kristín Þóra Pétursdóttir, clarinet
Matthías Birgir Nardeau, oboe
Carlos Aguilera, trombone
Páll Palomares, violin
Vera Panitch, violin
Þórunn Ósk Marinósdóttir, viola
Hrafnkell Orri Egilsson, cello
Richard Korn, double bass
Guðmundur Pétursson, electric guitar
Anna Guðný Guðmundsdóttir, piano
Soraya Nayyar, percussion
Soloists:
Hildigunnur Einarsdóttir, mezzo soprano
Duo Harpverk:
Katie Buckley, harp
Frank Aarnink, cimbalon
Conductor in Sveinbjarnardóttir´s piece: Una Sveinbjarnardóttir
Conductor in Tómasson´s and Bjarnason´s piece: Rúnar Óskarsson