Opnunarathöfn Myrkra músíkdaga 25. janúar kl. 19:00
Formaður TÍ, Þórunn Gréta Sigurðardóttir, tekur til máls og opnar hátíðina og útnefnir heiðursfélaga. Hamrahlíðarkórinn syngur eitt verk eftir hvorn heiðursfélaga. Stjórnandi: Þorgerður Ingólfsdóttir
Að auki verður innsetningin Sjónsmíð 1 eftir Atla Bollason opnuð formlega. Sjónsmíð er verk sem samanstendur af litum og óhlutbundnum formum á stöðugri hreyfingu; verk þar sem flæðið er markað af myndhrynjandi og ljósstyrk; verk þar sem á skiptist sjónstríða og sjónþýða. Hún stendur til 1. febrúar.