Back to All Events

Ondes Martenot - Magnús Jóhann Ragnarsson

Ondes Martenot - Magnús Jóhann Ragnarsson
Ondes Martenot - Magnús Jóhann Ragnarsson

Föstudagur 30. janúar 2026
17:00-18:00
Kaldalón

Flytjandinn, upptökustjórinn og tónskáldið Magnús Jóhann Ragnarsson hefur síðustu misseri tekið ástfóstri við einu elsta rafhljóðfæri tónlistarsögunnar, Ondes Martenot, hannað af franska tónlistarfræðingnum Maurice Martenot árið 1928. Ondes Martenot er einradda hljómborðshljóðfæri sem framkallar hljóm sinn í gegnum sett fjögurra ólíkra hátalara sem allir búa yfir sínum sérstaka hljóðblæ. Hefur áhugi Magnúsar á hljóðfærinu leitt hann til Parísar þar sem hann hefur sótt tíma við Conservatoire National Supérieur de Musique de Paris og þar komist í tæri við upprunalega flytjendahefð hljóðfærisins.

Magnús vinnur nú að söfnun nýrra tónverka sem samin eru sérstaklega fyrir hann sem flytjanda og hljóðfærið. Á tónleikum sínum frumflytur Magnús Jóhann ný verk eftir tónskáldin Ingibjörgu Elsu Turchi og Tuma Árnasonar, ásamt því að þau Magnús Jóhann og Bára Gísladóttir, tónskáld og kontrabassaleikari, flytja verk af væntanlegri plötu þeirra beggja sem inniheldur spunaverk fyrir Ondes Martenot og kontrabassa.

//

The performer, record producer and composer Magnús Jóhann Ragnarsson has in recent years fallen in love with one of the oldest electronic instruments in music history, the Ondes Martenot, designed by the French musicologist Maurice Martenot in 1928. The Ondes Martenot is a monophonic keyboard instrument that produces its sound through a set of four different speakers, each with its own unique sound. Magnús's interest in the instrument led him to Paris, where he has studied at the Conservatoire National Supérieur de Musique de Paris and became familiar with the instrument's original performing tradition.

Magnús is currently working on collecting new compositions that are written especially for him as a performer and this particular instrument. At this concert, Magnús Jóhann will premiere new works by composers Ingibjörg Elsa Turchi and Tumi Árnason. Magnús Jóhann and composer and double bassist Bára Gísladóttir will also perform works from their upcoming album, featuring improvisations for Ondes Martenot and double bass.

Flytjendur / Performers

Magnús Jóhann Ragnarsson, Ondes Martenot og önnur hljómborð / Ondes Martenot and other keyboard instruments

Bára Gísladóttir, kontrabassi og rafhljóð / double bass and electronics

Efnisskrá / Programme

Ingibjörg Elsa Turchi (1988): Hringiða (2026

Bergur Þórisson (1993): Sínus (2024)

Tumi Árnason (1991): l'onde sonne ses sons sains (2026)

Magnús Jóhann og Bára Gísladóttir: Frjáls spuni

Um efnisskrána

Ég man ekki lengur alveg skýrt hver fyrstu kynni mín af hljóðfærinu Ondes Martenot voru en það var líklega fyrir tæpum áratug síðan sem ég varð þess fyrst var í tónlist Johnny Greenwood og Messian.

Þetta furðulega hljómborðshljóðfæri sem leikið er á með hring á fingri og tengt í ýmsa undarlega hátalara þótti mér afar spennandi. Ekki verra að þetta skyldi vera einn elsti hljóðgervill tónlistarsögunnar, fundinn upp árið 1928! Vandinn var hinsvegar sá að hljóðfærið er afar sjaldgæft og ekkert hljóðfæri til í fullri stærð á Íslandi á þeim tíma.

Eftir margar svefnlausar nætur og mikla þráhyggju fyrir þessu dularfulla tæki tók ég málin í eigin hendur og pantaði nýja smíði af þessu forna apparati frá Kanada. David Kean heitir hljóðfærasmiðurinn er býr til Ondéa, sína eigin tegund af Ondes Martenot. 2024 fékk ég gripinn í hendurnar og hófust þá rannsóknir. 

Síðan þá hef tekið miklu ástfóstri við hljóðfærinu og hef komist að því að möguleikar þess eru mun fleiri en yfirborðsþekking gefur til kynna. Ég hef sótt í viskubrunn franskra ondes meistara á borð við Nathalie Forget í Tónlistarakademíunni í París og kynnt mér bæði 20. og 21. aldar tónlist fyrir hljóðfærið í ýmsu samhengi. Sömuleiðis er ég ötull notandi þess í eigin verkefnum af öllum stærðum og gerðum. En ég er rétt að hefja mína vegferð og á mikið eftir ólært. 

Sem hluta af leiðangri mínum hef ég fengið nokkur af mínum uppáhalds tónskáldum á Íslandi til að semja ný verk fyrir hljóðfærið. Eitt verkanna samdi Bergur Þórisson fyrir mig til flutnings á hátíð okkar, State of the Art, árið 2024 en á Myrkum músíkdögum í ár er ég svo heppinn að fá að frumflytja tvö ný verk eftir Ingibjörgu Turchi og Tuma Árnason! 

Að loknum verkunum þremur munum við Bára Gísladóttir fremja spunagaldur á ondes og kontrabassa en við vinnum nú að upptökum á dúóplötu. 

  • – Magnús Jóhann Ragnarsson, 27.01.2026

Magnús Jóhann Ragnarsson hefur frá árinu 2015 hefur verið mjög virkur sem tónlistarflytjandi, tónskáld og upptökustjóri en hann hefur leikið inná hundruði hljóðrita og kemur fram á fjölmörgum tónleikum á ári hverju. Moses Hightower, Bríet, Ingibjörg Turchi, Aron Can og Bubbi Morthens eru dæmi um samsstarfsaðila hans en sjálfur hefur Magnús gefið út fjölda sólóplatna og tvær stuttskífur. Auk þeirra gaf hann út dúóplöturnar Án tillits 2021, með Skúla Sverrissyni, Tíu íslensk sönglög 2022 og Nokkur jólaleg lög 2024 með GDRN auk Fermented Friendship með Óskari Guðjónssyni 2024. Magnús Jóhann var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023 og 2025 og er einn af stofnendum tónlistarhátíðarinnar State of the Art sem fór fram í fyrsta sinn haustið 2024.
//

Magnús Jóhann Ragnarsson has been an active performer, composer, and producer in Iceland’s music scene since 2015. An award winning performer, known for his innovative approach to keyboards of all kinds, Magnús has contributed to hundreds of recordings and performs extensively each year. His collaborations span a wide range of artists, including Laufey, Ólafur Arnalds, Moses Hightower and Steingrímur Gauti. Magnús has released several albums, including Án tillits (2021) with Skúli Sverrisson, Tíu íslensk sönglög (2022) & Nokkur jólaleg lög (2024) with GDRN, and Fermented Friendship (2024) with Óskar Guðjónsson. His music combines intricate harmonies and dynamic improvisation, earning him a reputation for blending modern jazz with diverse musical influences. In 2023, Magnús was named Performer of the Year at the Icelandic Music Awards. In addition to his performing career, Magnús is one of the founders of the State of the Art music festival, which launched in 2024, further establishing his influence in the contemporary Icelandic music scene.